
Velkomin á heimasíðu
Rexhunda
Skrifstofan okkar er opin alla þriðjudaga frá
18:00 til 19:00 að Dugguvogi 6 2.hæð.
( í sama húsi og Fossberg kort )
Sími: 533-1310
---------------------------------------
Skráning á sýninguna, sem haldinn verður 17.-18.mars 2012, er hafin.
Sýningin fer fram í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.
Dómari á þessari sýningu er Jonny Anderson frá Írlandi.
Seinasti skráningardagur er 21.febrúar 2012.
Við minnum á keppni ungra sýnenda og heimilishunda sem fram fer á sýningunni.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins í síma 533-1310 á opnunartíma og í gegnum netfangið rexhundar@rexhundar.is
Eyðublöðin má nálgast hér fyrir neðan:
------------------------------------------
Auglýsingar í sýningarskrá
Félagsmönnum gefst kostur á að auglýsa í sýnarskrá félagsins, annaðhvort sína ræktun eða sína vöru.
Um er að ræða tvennskonar auglýsingar.
Án myndar: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.000kr.-
Með mynd: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.500kr.-
Upplýsingar á netfangi rexhundar@rexhundar.is
----------------------------------------------
Þeir sem áhuga hafa á að gefa bikar fyrir mars sýninguna vinsamlegast hafið samband við stjórnar á netfangið rexhundar@rexhundar.is
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------Félagsgjöld fyrir árið 2012 hafa verið send út og geta félagsmenn séð seðlana í sínum heimabanka. Athugið að ekki voru sendir út gíróseðlar. Þeir sem vilja frekar fá gíróseðil fyrir næsta ár (2013) geta haft samband við stjórnarmeðlimi og fengið sendan seðil og kostar það 300,- aukalega.
Kær kveðja stjórn Rex.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Sýningar 2012---------------------------------------------------------------------------------------
Breyting á sýningarreglum
Athygli skal vakin á því að frá og með 1.júní 2011 breytast sýningarreglur Hundaræktunarfélagsins Rex.
Eingöngu hundar með ættbók frá Hundaræktunarfélaginu Rex geta tekið þátt í sýningum félagsins, að undanskildum heimilishundaflokki.
--------------------------------------------------------------------------------------
Til Ræktenda!
Vinsamlegast munið að skila inn öllum pappírum um undaneldishunda áður en parað er inn til ræktunarráðs. Hægt er að senda á netfangið rexhundar@rexhundar.is og merkja það ræktunarráð.Ræktunarreglur félagsins.
Ræktendur athugið! Undaneldis hundar þurfa að standast vissar heilsufarskröfur fyrir pörun.Nánar er hægt að sjá þetta hérEinnig er þarna listi með tegundum og þeirri skoðun sem sú tegund þarf að hafa fyrir pörun. ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Félagsmönnum gefst kostur á að senda mjaðma og olnboga myndir til OFA til aflestrar. Nánar má lesa um þetta undir heilsufarskröfur, hér